Í dag, föstudag, var gengið frá samningum við Bifreiðastöð Þórðar Þ. Þórðarsonar um kaup á nokkrum fasteignum um leið og Akraneskaupstaður seldi bifreiðastöðinni fasteign sína á Ægisbraut 1-5, þar sem áhaldahúsið hefur verið. Þær eignir sem Akraneskaupstaður keypti á móti af bifreiðastöðinni eru: Kirkjubraut 16 (svonefnt Hvítanes), Sunnubraut 3, Vesturgata 121 (áður fiskverkunarhús Þórðar Óskarssonar), Suðurgata 93 og Esjubraut 49.
Bæjarráð hefur þegar ákveðið að undirbúa niðurrif eignanna á Esjubraut, Kirkjubraut, Sunnubraut og Vesturgötu og falið skipulags- og umhverfisnefnd að taka reitina á Esjubraut og við Kirkjubraut og Sunnubraut til skipulagningar. Heildarverð þeirra eigna sem keyptar voru nemur 51 mkr. og Ægisbraut 1-5 var seld á 28 mkr. Eignirnar verða afhentar þann 10. september n.k. nema Vesturgata 121 sem verður afhent 10. október n.k.