ForsíðaÞjónustaStjórnsýslaMannlífBein útsending English Dansk Lithuanian Polski Deutsch
Hvað viltu gera?
Prenta vefsíðu
Fréttasafn
2013
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2012
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2011
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2010
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2009
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2008
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2007
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2006
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2005
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2004
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2003
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2002
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2001
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
Áskrift að fréttum:
Smelltu hér

Fréttapistill frá æskulýðsheimilinu Arnardal

22. maí 2003

Síðastliðinn vetur hefur verið viðburðaríkur og margir unglingar sótt Arnardal. Arnardalur er ætlaður öllum unglingum í 8., 9. og 10. bekk sem hafa áhuga á okkar starfsemi. Við getum sagt að milli 60-80 unglingar stundi Arnardal reglulega, mismikið eftir því hvernig stendur á skóla og íþróttaæfingum og langflestir unglingar á þessum aldri sækja einhverja af stærri viðburðum okkar.   Opið hefur verið alla virka daga í vetur frá kl: 16-18,30 og þrjú kvöld í viku.

 

Starfsemi Arnardals felst aðallega í opnum húsum þar sem unglingarnir geta komið saman og hist. Í Arnardal erum við með spil af ýmsu tagi, sjónvörp, video, billjardborð, borðtennis, fótboltaspil, körfuboltaspil, píluspjald svo eitthvað sé nefnt.


Þá erum við einnig með sérstakar uppákomur eins og gistinótt, böll, álfabrennuna, öskudaginn, jólasprell og margt fleira. Við höfum verið í samstarfi við ýmsa aðila í vetur varðandi uppákomur og verðlaun. Má þakka því góða fólki fyrir aðstoðina. 

 

 

 

 

Hér höfum við einnig diskabúr, framköllunarherbergi og vídeoklippiherbergi, sem unglingunum er frjálst til afnota. Við reynum þó að vera með námskeið fyrir unglingana ef áhugi er fyrir hendi.


Næsta vetur komum við til með að vera með ýmis stutt námskeið og okkar föstu dagskrárliði. Breyting verður á högum okkar og ætlum við að senda út fréttablað til foreldra í byrjunn annar, þannig að foreldrar geta hvatt börn sín til að taka þátt. Einnig erum við á leiðinni með heimasíðu sem við vonumst til að verði  komin í gagnið n.k. haust. Á heimasíðunni verða allar upplýsingar um starf okkar og viðburði.


Í Arnardal er starfandi Arnardalsráð sem samanstendur af 6 röskum unglingum, sem eru til þess valin, frá báðum grunnskólum. Þau koma með hugmyndir í starfið og hjálpa til að vera með fjölbreytta dagskrá, ásamt því að þau hjálpa til við stærri viðburði.

Arnardalsráð fyrir næsta vetur er skipað eftirtöldum aðilum: Þór Birgisson formaður, Eydís Smáradóttir, Rakel Pálsdóttir, Aron Dan, Guðmundur Guðjónsson og Thelma Ýr Gylfadóttir.


Við erum aðilar að Samfés sem eru landssamtök félagsmiðstöðva. Samfés er með fjölbreytta dagskrá á sínum vegum og förum við eins mikið og við gátum á þá viðburði, má þá nefna stóra Samfésballið í Kaplakrika, Söngvakeppni Samfés, landsmót ofl. Á hverju hausti hengjum við upp plakat í skólana með viðburðum vetrarins hjá Samfés.


Við viljum benda foreldrum á að vera ófeimnir við að hafa samband við okkur ef þeir óska eftir upplýsingum um starfsemina hér eða "unglingakúltúrinn" almennt. Einnig sinnum við verkefnum með unglinga á faglegum nótum er þess þurfa í samvinnu og samráði við skólasálfræðinga, námsráðgjafa og félagsmálayfirvöld.


Þá er komið að lokum hjá okkur, starfsemi Arnardals fellur niður á sumrin en við byrjum aftur fersk næsta haust. Sú starfsemi sem fram fer í Arnardal á sumrin er bundin við starfsemi Vinnuskólans og Skólagarða Akraness.
Þá er þess að geta að miðvikudaginn 28. maí koma danskir unglingar í heimsókn til 9.GÞ, við höfum því opið í Arnardal það kvöld frá kl: 20-23. Lokahátíð Arnardals er föstudaginn 30. maí í Jaðarsbakkalaug. Við verðum með leiki, grill, Fear factor og endum í sundlaugarpartíi frá kl: 21-23. Nánar auglýst síðar.

 

Starfsmenn Arnardals þakka unglingunum kærlega fyrir samstarfið í vetur.

 

Gleðilegt sumar!

AMT/rþ
 
 
 
RSS frá Akranesi
Akraneskaupstaður | kt:410169-4449 | Sími 433 1000 | Fax 433 1090 | Stillholt 16-18, 300 Akranes | Vefstjóri: akranes@akranes.is
Íslensku vefverðlaunin 2008