Aðalfundur Skógræktarfélag Akraness verður haldinn í bæjarþingsalnum, Stillholti 16-18, miðvikudaginn 14. maí kl. 20:30. Að loknum venjulegum aðalfundarstörfum mun umhverfisfulltrúi Akraneskaupstaðar, Hrafnkell Proppé, kynna nýtt skógræktarsvæði við þjóðveg.
Skógræktarfélagið fékk nú nýlega úthlutað nýju svæði austan þjóðvegar. Um er að ræða 20 hektara svæði sem mun mynda kraga utan um væntanlegt Skógarhverfi. Á fundinum verða kynnta þær hugmyndir sem uppi eru um að tengja nýtt svæði þeim skógræktarreitum sem fyrir eru s.s. Garðalundi, Skólaskógum og Skógræktinni við Klapparholt. Mikilvægt er að vel takist til í uppbyggingu því bæði hefur svæðið mikið að segja með að fegra innkomuna í bæinn um leið og það verður framtíðar útivistarparadís Akurnesinga.Allir þeir sem áhuga hafa á skógrækt, útivist og að fegra innkeyrsluna í bæinn eru hvattir til að koma, taka þátt í umræðunni og þiggja kaffiveitingar.