Menningarráð Vesturlands úthlutaði styrkjum fyrir árið 2009 við hátíðlega athöfn í Leifsbúð í Búðardal, föstudaginn 27. febrúar s.l.Í ávarpi formanns, Jóns Pálma Pálssonar, kom fram að alls hafi borist 153 umsóknir um 170 verkefni að upphæð rúmlega 115 miljónir króna. Ánægjulegt væri að sjá hversu metnaðarfullar og vel unnar umsóknir í sjóðinn væru, en væntingar væru til þess að samningar við ríkið um endurnýjun samnings verði til þess að meira fjármagn fáist til eflingar menningarlífinu á Vesturlandi. Úthlutun styrkja á árinu 2009 voru samtals 25 milljónir króna.Styrkveitingar til Akraness og Hvalfjarðarsveitar að þessu sinni eru eftirfarandi:
Hægt er að fá nánari upplýsingar um starfsemi menningarráðsins og styrkjaúthlutun fyrir árið 2009 á heimasíðu menningarráðs: http://menningarviti.is