Undirritaður hefur verið nýr samningur milli Akraneskaupstaðar og Keilufélags Akraness. Í samningnum eru m.a. ákvæði þess efnis að Keilufélagið mun sjá um að keilusalurinn verði opinn almenningi þrisvar í viku; þriðjudaga og miðvikudaga kl. 20:00 – 22:00 og laugardaga kl. 14:00 – 18:00 og er tilvalið fyrir fjölskylduna að skreppa í keilu. Einnig er hægt að semja við Keilufélagið um lokaða tíma fyrir hópa t.d. afmælishald eða óvissuferðir. Með samningnum er vonast til að starfsemi Keilufélagsins haldi áfram að blómsta og framhald verði á góðum árangri félagsmanna eins og verið hefur undanfarin ár.