ForsíðaÞjónustaStjórnsýslaMannlífBein útsending English Dansk Lithuanian Polski Deutsch
Hvað viltu gera?
Prenta vefsíðu
Fréttasafn
2013
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2012
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2011
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2010
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2009
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2008
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2007
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2006
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2005
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2004
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2003
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2002
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2001
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
Áskrift að fréttum:
Smelltu hér

Síðasti kynningarfundur um ný skólalög 19. janúar

13. janúar 2009

Sameiginlegri fundaferð menntamálaráðuneytis og Sambands íslenskra sveitarfélaga um landið til kynningar og umræðna um ný lög um skóla og menntun lýkur með fundi í Reykjavík mánudaginn 19. janúar, í Skriðu, sal menntavísindasviðs Háskóla Íslands við Stakkahlíð. Fundurinn mun standa frá kl. 14:00 -16:00 og verður honum sjónvarpað beint á slóðinni http://sjonvarp.khi.is/. Um er að ræða fund fyrir stjórnsýsluna; sveitarstjórnarmenn, starfsmenn skóla- og fræðsluskrifstofa, skólanefndir og skólastjórnendur.

Á fundinum verður megináherslan lögð á að fjalla um þær breytingar og nýjungar sem lögin boða, með áherslu á leik- og grunnskólalög, og hafa munu sérstök áhrif á starfshætti sveitarfélaga og starfsmanna þeirra er sinna málefnum leik- og grunnskóla fyrst og fremst. Fjallað verður um ýmsar spurningar sem vaknað hafa í upphafi skólaársins, þ.á.m. gjaldtöku vegna skólamáltíða og ferðalaga nemenda, kostnað vegna náms grunnskólanemenda í framhaldsskólum, skipan skólaráða, samrekstrarmöguleika o.fl.  Þá verður vikið að breytingum á hlutverki og skyldum skólastjórnenda og nýjum skyldum sveitarfélaga við eftirlit og mat á gæðum skólastarfs, vegna sérfræðiþjónustu o.fl . Spurt verður hvort skynsamlegt sé að setja á fót millikærustig innan sveitarfélags í ljósi kæruheimilda er tengjast ýmsum ákvæðum nýrra laga. Farið verður yfir stöðu reglugerðar- og námskrárvinnu í tengslum við lögin o.fl. Þessi álita- og umræðuefni auk þeirra annarra sem fundarmenn hafa áhuga á að bera upp verða í brennidepli á þessum fundum og gefinn verður góður tími til umræðna að loknum framsögum fulltrúa menntamálaráðuneytis og sambandsins.

Hlutaðeigendur eru hvattir til þess að nýta þetta tækifæri vel til þess taka virkan þátt í fundinum og koma skoðunum sínum á framfæri. Álit  sveitarstjórnarmanna og starfsmanna og stjórnenda skóla- og fræðslumála á nýjum lögum, væntanlegum reglugerðum og þeim áhrifum sem þau munu hafa á skólahald sveitarfélaga til framtíðar er afar þýðingarmikið innlegg í áframhaldandi starf og framþróun á grundvelli laganna,  þ.á.m. í tengslum við þá reglugerðarvinnu sem nú er hafin. Þeir sem ekki hafa haft tök á því til þess að sækja þennan fund eða hafa getað sótt kynningarfundina heima í héraði, hafa nú tækifæri til þess að fylgjast með útsendingu frá fundinum 19. janúar á vefslóðinni  http://sjonvarp.khi.is/.

 

 
 
 
RSS frá Akranesi
Akraneskaupstaður | kt:410169-4449 | Sími 433 1000 | Fax 433 1090 | Stillholt 16-18, 300 Akranes | Vefstjóri: akranes@akranes.is
Íbúakönnun 2013 Íslensku vefverðlaunin 2008