ForsíðaÞjónustaStjórnsýslaMannlífBein útsending English Dansk Lithuanian Polski Deutsch
Hvað viltu gera?
Prenta vefsíðu
Fréttasafn
2013
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2012
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2011
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2010
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2009
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2008
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2007
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2006
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2005
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2004
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2003
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2002
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2001
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
Áskrift að fréttum:
Smelltu hér

Mikið um að vera í Arnardal

24. febrúar 2003

Þeir sem mættu í Arnardal síðastliðinn fimmtudag voru svo heppnir að geta tekið þátt í brjóstsykursgerð að hætti Dana. Starfsmenn vora að æfa sig í að gera brjóstsykur eftir leynilegri uppskrift en framleitt var allt kvöldið og tókst vel til. Unglingunum þótti þessi uppákoma mjög spennandi og því verður námskeið fyrir þá í brjóstsykursgerð í næsta mánuði.

Sundlaugarpartý
Félagsmiðstöðin Arnardalur hélt, í samvinnu við Bjarnalaug, sundlaugarpartý fyrir nemendur í 8. - 9. og 10. bekk síðastliðið föstudagskvöld.  Mikil stemming var í Bjarnarlaug og sóttu milli 30 - 40 unglingar skemmtunina  sem var í upphitaðri laug, tónlist og huggulegheitum.

 

Skíðaferð.
Skíðaferð var farin frá félagsmiðstöðinni Arnardal laugardaginn 22.febrúar.  25 unglingar ásamt starfsmönnum héldu á vit ævintýranna. Farið var í Bláfjöll en þar voru allar lyftur opnar en það er í fyrsta skiptið í 3 ár. Unglingarnir skemmtu sér mjög vel og voru flestir á brettum en færið var mjög gott þennan dag. Það  voru þreyttir en ánægðir unglingar sem snéru heim þennan daginn.

 

Hvað er framundan?
Næsta föstudag, 28. febrúar, verður Öskuball í Arnardal og eru unglingarnir hvattir til að mæta í furðubúningum.

 

Þá verður farin hópferð á stóra Samfés-ballið í Kaplakrika Hafnarfirði 7. mars n.k.. Þar hittast unglingar frá öllum félagsmiðstöðvum á landinu og skemmta sér saman. Meðal hljómsveita sem spila verða, Sálin hans Jóns míns, Írafár, Í svörtum fötum, Búdrýgindi, Igore og fleiri og fleiri.

 

Félagsmiðstöðin kemur til með að sjá um öskudagsskemmtanir í bænum þann 5.mars n.k. þ.e.a.s. tunnuslátt og öskudagsböll.

 

Árshátíð skólanna og Arnardals verður síðan haldin með stæl þann 28. mars n.k.

 
 
 
RSS frá Akranesi
Akraneskaupstaður | kt:410169-4449 | Sími 433 1000 | Fax 433 1090 | Stillholt 16-18, 300 Akranes | Vefstjóri: akranes@akranes.is
Íslensku vefverðlaunin 2008