Heimasíða Akraneskaupstaðar www.akranes.is fær þriðju bestu heildarútkomu í úttekt sem gerð var á vefjum 20 stærstu sveitarfélaganna þar sem fjallað er um þjónustuhlutverk þeirra. Lagt var mat á þrjá þætti þjónustu sem voru; vefur sem frétta- og upplýsingamiðill, vefur sem þjónustuvefur og vefur sem vettvangur umræðu og skoðanaskipta.
Úttektin var að mestu unnin í lok árs 2002 en þar sem Reykjavíkurborg og Akraneskaupstaður tóku upp nýtt úrlit í byrjun árs 2003 voru þeir vefir endurskoðaðir. Úttektin var gerð af Jóni Heiðari Þorsteinssyni og eru niðurstöðurnar jafnframt bornar saman við könnun sem gerð var á vefjunum árið 2001. Vefur Akraneskaupstaðar hefur bætt sig töluvert frá fyrri úttekt einna helst að þeim þáttum sem snúa að þjónustu, frétta- og upplýsingamiðlun.
Meðaltal vefs Akraneskaupstaðar er 68%. Fyrir þjónustuver 75%, fyrir fréttir og upplýsingamiðlun 78% og fyrir umræðu og skoðanaskipti 50%. Þess má einnig geta að meðaltal fjölmennustu sveitarfélaga var 56% og 54% sveitarfélaga sem eru 6 - 10 fjölmennust en Akranes er tilheyrir einmitt þeim síðar nefnda.
Helsta niðurstaða Jóns Heiðars, skýrsluhöfundar, er að fjölmennustu sveitarfélögin hafa bætt umtalsvert við þjónustu á vefnum en margir þeirra eru síður vettvangur umræðu og skoðanaskipta en áður. Fámennustu sveitarfélögin virðast lítið hafa bætt þjónustu á vefjum sínum. Ef þessi þróun heldur áfram telur skýrsluhöfundur að umtalsverður munur verði á þjónustu og efni á vefjum fámennra og fjölmennra sveitarfélaga hér á landi áður en lagt um líður.
Því er óhætt að segja að Akranes sé "Alltaf í sókn" á þessum sviðum sem öðrum.