Nú um hádegið hófst hið árlega Kaupþingsmót á Akranesi, en þar leika knattspyrnuhetjur framtíðar í 7. flokki af miklu kappi. Mótið setti Gísli S. Einarsson, bæjarstjóri á Akranesi í Akraneshöll en þangað höfðu keppendur og fararstjórar gengið í fjölmennri skrúðgöngu þar sem fánar liðanna blöktu og keppnissöngvar voru sungnir. Veðrið á Skaganum leikur við mótsgesti enda má segja að bærinn sé fullur af fólki. Alls taka um 100 lið þátt í mótinu og hafa þau aldrei verið fleiri. Liðin koma frá 25 félögum víðs vegar að af landinu og er spilað á 15 völlum. Alls verða leiknir u.þ.b. 450 leikir og eru þátttakendur ríflega 1000. Mótinu lýkur laust eftir hádegi á sunnudaginn.