ForsíðaÞjónustaStjórnsýslaMannlífBein útsending English Dansk Lithuanian Polski Deutsch
Hvað viltu gera?
Prenta vefsíðu
Fréttasafn
2013
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2012
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2011
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2010
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2009
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2008
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2007
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2006
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2005
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2004
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2003
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2002
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2001
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
Áskrift að fréttum:
Smelltu hér

Ársreikningar Akraneskaupstaðar til fyrri umræðu í bæjarstjórn

28. maí 2008
Á síðasta fundi bæjarstjórnar Akraness þriðjudaginn 27. maí 2008 voru ársreikningar Akraneskaupstaðar og stofnana hans fyrir árið 2007 teknir til umfjöllunar. Heildartekjur Akraneskaupstaðar voru á árinu 2007,  2.838 mkr. sem eru um 128 mkr. umfram fjárhagsáætlun ársins.  Rekstrarútgjöld voru 2.817 mkr.  án fjármagnsliða sem voru jákvæðir um 140,5 mkr.  Rekstarafkoman í heild sinni var þannig jákvæð um 162,4 mkr., en fjárhagsáætlun gerði hins vegar ráð fyrir halla að fjárhæð 12,3 mkr., þannig að rekstrarafkoma ársins var um 174,7 milljónum króna betri en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir.

Handbært fé frá rekstri var 410,8 milljónir króna m.v. áætlun sem gerði ráð fyrir 152,7 mkr.

 

Heildar fjárfesting Akraneskaupstaðar á árinu 2007 var 847,5 mkr. og voru stærstu fjárfestingar í skólahúsnæði 305,3 mkr., og gatnagerð 193,8 mkr. ásamt ýmsum minni framkvæmdum.

Tekin langtímalán á árinu 2007 voru 525,9 mkr. en afborganir langtímalána voru 124,8 mkr.

Eignastaða Akraneskaupstaðar er áfram afar sterk.  Heildareignir eru um 9,1 milljarðar króna, þar af eigið fé um 5,7 milljarðar.  Langtímaskuldir eru 1.285 milljónir og lífeyrisskuldbindingar eru 1.508 milljónir.

Sjá ræðu bæjarstjóra

Sjá sjá glærur með ræðu bæjarstjóra

Sjá ársreikning Akraneskaupstaðar 2007

JPP/rþ
 
 
 
RSS frá Akranesi
Akraneskaupstaður | kt:410169-4449 | Sími 433 1000 | Fax 433 1090 | Stillholt 16-18, 300 Akranes | Vefstjóri: akranes@akranes.is
Íslensku vefverðlaunin 2008