Í gær var haldinn kynningarfundur um móttöku flóttamanna á Akranesi í Tónbergi, en að fundinum stóðu Akraneskaupstaður, Rauði kross Íslands og félags- og tryggingamálaráðuneytið. Húsfyllir var á fundinum og er óhætt að segja að fundargestir hafi almennt lýst yfir stuðningi við og verið einhuga um fyrirhugaða komu flóttamanna til Akraness.
Á fundinum kom m.a. fram að auglýst verður eftir húsnæði fyrir flóttafólkið á almennum leigumarkaði. Þannig mun húsnæðisþörf flóttafólksins ekki hafa áhrif á þann biðlista sem er eftir félagslegu húsnæði hjá Akraneskaupstað. Flóttafólkið á rétt á húsaleigubótum samkvæmt reglum eins og aðrir íbúar Akraness en ríkið mun greiða mismuninn á bótunum og leiguverðinu. Auk þessa mun ríkið í gegnum Rauða krossinn sjá þeim fyrir nauðsynlegu innbúi og síma.
Flóttamönnum verður tryggð framfærsla frá ríkinu fyrsta árið samkvæmt reglum Akraneskaupstaðar um fjárhagsaðstoð. Fyrir þá sem ekki verða komnir í vinnu á öðru dvalarári þá endurgreiðir ríkissjóður sveitarfélagi kostnað vegna fjárhagsaðstoðar.
Skynsamlegt er að þau börn sem kunna að vera á leikskólaaldri fái ”mjúka lendingu” í okkar samfélagi og lögð verði áhersla á þjónustu sem gerir ráð fyrir sem mestri samveru foreldris og barna á leikskólaaldri fyrstu mánuðina. Um áramót þegar Akrasel verður tilbúið eru næg leikskólarými. Á haustmánuðum verði börnunum séð fyrir umönnun og gæslu í tengslum við íslenskukennslu. Einnig verði leikskólinn kynntur og börnin fari í heimsókn þangað.
Síðastliðið haust bættust margir pólskir nemendur í Grundaskóla. Valin var sú leið að koma á fót móttökudeild þar sem nemendur fengu sérhæfða þjónustu auk þess að sækja kennslu í sínum bekkjum. Þetta skipulag virðist henta og því er unnið út frá þeirri hugmynd að mynda slíka móttökudeild í kringum þennan hóp. Móttökudeild er tímabundið úrræði sem getur staðið í allt að tvö ár þar sem stuðningurinn er mestur í upphafi en smá saman tekur nemandinn meiri og meiri þátt í almennu bekkjarstarfi.