Stjórn Markaðsráðs Akraness stendur fyrir kynningarfundi í kvöld 6. febrúar vegna fyrirhugaðrar atvinnuvegasýningar á Akranesi í september 2003. Til þess að slík sýning geti orðið að veruleika er nauðsynlegt að sem flest fyrirtæki, stofnanir, einyrkjar, handverksfólk og fleiri verði þátttakendur. Því eru allir áhugasamir hvattir til að mæta á Hótel Barbró í kvöld kl. 20:00 og kynna sér málið.
Sýningunni er ætlað að kynna hina fjölbreyttu flóru starfsemi á Akranesi og í nágrenninu samhliða því að kynna vænleika þess að staðsetja atvinnurekstur á svæðinu. Gert er ráð fyrir að til að farið verði í þetta verkefni þurfi að lágmarki 60-80 aðilar að skrá þátttöku í sýningunni sem haldin verður á 800 ferm. sýningarsvæði, auk útisvæðis, dagana 26. til 28. september 2003. Hægt verður að skrá þátttöku í kvöld en staðfesta verður þátttöku fyrir apríllok.