ForsíðaÞjónustaStjórnsýslaMannlífBein útsending English Dansk Lithuanian Polski Deutsch
Hvað viltu gera?
Prenta vefsíðu
Fréttasafn
2013
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2012
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2011
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2010
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2009
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2008
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2007
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2006
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2005
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2004
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2003
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2002
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2001
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
Áskrift að fréttum:
Smelltu hér

Bæjarráð stuðlar að heilsueflingu starfsfólks

15. maí 2008

Á 3000. fundi bæjarráðs Akraness sem haldinn var síðdegis í gær var samþykkt einróma  tillaga sem stuðla á að heilsueflingu starfsmanna Akraneskaupstaðar. Tillagan er svohljóðandi:

 

“Bæjarráð Akraness samþykkir að stuðla að heilsueflingu starfsmanna Akraneskaupstaðar með því að styrkja starfsmenn kaupstaðarins sem vilja stunda reglubundna líkamsrækt í íþróttamannvirkjum Akraneskaupstaðar með árlegu fjárframlagi sem nemur sömu upphæð og árskort í sund kostar á hverjum tíma ( í dag kr. 17.330.-).

Greiðslan er miðuð við fullt starf og hlutfallslega miðuð við starfshlutfall, þó þannig að einungis fastráðnir starfsmenn Akraneskaupstaðar í 33% starfshlutfalli og hærra njóta þessarar endurgreiðslu.

Greiðsla styrkja fer fram hjá skrifstofu Akraneskaupstaðar gegn framvísun kvittunar á greiðslu árskorts.”

Bæjarráð samþykkir tillöguna.  Fram kom á fundinum að tillagan nýtur stuðnings þeirra bæjarfulltrúa sem sátu fundinn og eiga ekki sæti í bæjarráði.

 

 
 
 
RSS frá Akranesi
Akraneskaupstaður | kt:410169-4449 | Sími 433 1000 | Fax 433 1090 | Stillholt 16-18, 300 Akranes | Vefstjóri: akranes@akranes.is
Íslensku vefverðlaunin 2008