ForsíðaÞjónustaStjórnsýslaMannlífBein útsending English Dansk Lithuanian Polski Deutsch
Hvað viltu gera?
Prenta vefsíðu
Fréttasafn
2013
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2012
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2011
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2010
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2009
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2008
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2007
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2006
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2005
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2004
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2003
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2002
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2001
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
Áskrift að fréttum:
Smelltu hér

Sjómaðurinn er ekki á förum

2. apríl 2008

Í gær birtist frétt hér á vef Akraneskaupstaðar þess efnis að til stæði að færa “Sjómanninn” af Akratorgi og í skógræktina í Garðalundi vegna fyrirhugaðra framkvæmda á torginu. Torgið skyldi minnkað og að hluta lagt undir bílastæði og listaverkinu því komið fyrir til framtíðar í skógræktinni. Þetta var að sjálfsögðu sett fram í tilefni dagsins, sem var 1. dagur aprílmánaðar. Engu að síður tóku nokkrir bæjarbúar þetta mjög alvarlega og létu vanþóknun sína í ljós yfir þessum fáheyrða dónaskap gagnvart listaverkinu og listamanninum sem skóp það. Auk þess þótti fáranlegt að breyta Akratorgi í bílastæði. Nokkrir lögðu einnig leið sína á torgið til að fylgjast með meintum flutningi listaverksins, sem fram átti að fara síðdegis í gær. Af honum varð þó ekki, eins og áður segir. Sjómaðurinn vaktar Akratorgið enn og mun eflaust halda því áfram um ókomin ár. Allir þeir sem hlupu apríl af þessum sökum eru beðnir velvirðingar á því.

 

tg
 
 
 
RSS frá Akranesi
Akraneskaupstaður | kt:410169-4449 | Sími 433 1000 | Fax 433 1090 | Stillholt 16-18, 300 Akranes | Vefstjóri: akranes@akranes.is
Íslensku vefverðlaunin 2008