Þann 28. desember var stofnað Ljósmyndasafn Akraness við athöfn í Safnaskálanum að Görðum. Í tilefni þess var opnuð heimasíða Ljósmyndasafnsins en hún hefur að geyma eins og er um 600 myndir. Enn sem komið er eru á vefnum mjög takmarkaðar upplýsingar um myndirnar og einungis óformleg skráning hefur átt sér stað. Úr því verður bætt á næstu mánuðum með dyggri aðstoð allra þeirra sem þekkja til myndanna auk þess sem fjölda mynda verður bætt við.
Í hvert skipti sem forsíða vefsins er kölluð fram birtast tilviljanakennd sýnishorn úr myndagrunninum. Með því að smella á mynd birtist hún stærri á næstu skjámynd. Fyrir neðan myndina er hnappur þar sem gefin er kostur á að senda safninu upplýsingar um myndina. Með því að smella á þann hnapp kemur upp ný valmynd þar sem hægt er að slá inn upplýsingar um sendanda og myndina. Þegar myndir á forsíðu hafa verið skoðaðar er hægt að smella á forsíðuhnappinn eða F5 til að fá önnur tilviljunarkennd sýnishorn úr myndasafninu.
Á forsíðu heimasíðunnar eru gefnir tveir leitarmöguleikar, annars vegar að slá inn leitarorð og hins vegar að velja efnisflokk.
Ljósmyndasafnið er hægt að finna á heimasíðu Akraness undir, AFÞREYING og síðan valið SÖFN. Eða smellt hér http://www.akranes.is/ljosmyndasafn