Í byrjun ársins ákvað bæjarstjórn Akraness að lækka álagningarprósentu fasteignagjalda vegna ársins 2008. Um er að ræða lækkun á álagningarprósentu frá fyrra ári sem nemur u.þ.b. 15% sem stafar af því að fasteignamat á milli áranna 2007/2008 hækkaði um 20% að meðaltali, þannig að ekki er gert ráð fyrir að fasteignagjöld breytist umfram verðlagshækkanir. Þess ber þó að geta að Fasteignamat ríkisins endurmat allar fasteignir og lóðir á árinu 2007, þannig að breytingar geta verið mismunandi á milli ára hjá einstaka fasteignaeigendum, þótt meðaltalsbreytingar gjalda verði eins og áður sagði um 15%. Álagningaforsendur verða eftirfarandi: