Með þessum hætti leitast Seeds við að stuðla að mismunandi menningu, sameiginlegum skilningi og verndun umhverfisins. Verkefnið á Akranesi er unnið í samráði við bæjaryfirvöld auk þess að þiggja aðstoð frá umhverfissamtökunum Bláa Hernum.
Að sögn Tómasar Guðmundssonar, markaðsfulltrúa Akraneskaupstaðar, hefur bærinn undanfarið verið að biðja fólk um að hreinsa til í sínu sínu nánasta umhverfi. Auk Seeds hópsins mun bærinn fá sjálfboðaliða frá Veraldarvinum á næstunni í fleiri umhverfistengd verkefni. Hann segir sjálfboðaliðana frá Seeds duglega og skemmtilega og að gaman hafi verið að kynnast þeim.
Sjá nánar á vef Skessuhorns