Hrönn Ríkharðsdóttir aðstoðarskólastjóri og Sigurður Arnar Sigurðsson, deildarstjóri Grundaskóla, voru tilnefnd til Foreldraverðlauna 2007 fyrir upplýsingabæklinginn Engill úr Paradís. Heimili og skóli - landssamtök foreldra auglýsa eftir tilnefningu til foreldraverðlauna ár hvert og voru verðlaunin veitt í tólfta sinn þann 15. maí s.l. Dómnefnd mat 24 af innsendum tillögum til tilnefningar og var Engill úr Paradís eitt þeirra.
Upplýsingabæklingnum er ætlað að svara ýmsum spurningum foreldra sem vakna á meðan á grunnskólagöngu barna þeirra stendur. Foreldraverðlaunin hlaut íþróttafélagið Grótta fyrir að hafa samræmt sitt starf við skólastarf og aðra tómstundaiðju barna á Seltjarnarnesi.