Búnaðarsamtök Vesturlands boða til opins fundar um þjóðlendumál, fimmtudaginn 26. apríl 2007 á Hótel Borgarnesi og hefst fundurinn kl. 13.00Dagskrá fundarins er sem hér segir:
1. Ólafur Björnsson hæstaréttarlögmaður fjallar um lög um þjóðlendur og framkvæmd þeirra.2. Gunnar Sæmundsson bóndi fjallar um aðkomu Bændasamtaka Íslands að þjóðlendumálinu.3. Guðný Sverrisdóttir formaður Samtaka landeigenda kynnir sjónarmið samtakanna.4. Umræður.Bændur og aðrir landeigendur eru hvattir til að fjölmenna og kynna sér málið. Frambjóðendur til Alþingis í NV-kjördæmi eru sérstaklega boðaðir til fundarins.