Ljósmyndasafn Akraness hefur opnað sýninguna Á fermingardaginn í Listasetrinu Kirkjuhvoli. Þema sýningarinnar er fermingarljósmyndir og má sjá þróun þeirra frá fyrri hluta 20. aldar til dagsins í dag. Elsta fermingarmyndin er frá 1919 en sú yngsta frá 18. mars 2007. Sjá má einstaklings- og hópmyndir og myndir af fermingarbörnum fimmtíu árum síðar.
Fjöldi mynda frá fjölskyldu séra Jóns M. Guðjónssonar prýðir sýninguna, bæði fermingarmyndir og myndir frá kirkjulegum athöfnum fermingarinnar.Séra Jón var prestur við Akraneskirkju frá 1946-1975 en hann átti hugmyndina að því að kyrtlar yrðu notaðir við fermingarathafnir á Íslandi.
Á sýningunni er m.a. ungri stúlku, Hafdísi Ingimarsdóttur, fylgt eftir á fermingardaginn, en hún fermdist 18. mars sl.
Sýningin stendur yfir frá 14. – 29. apríl 2007.