Frá og með föstudeginum 23. febrúar verða gerðar breytingar á leiðakerfi Strætó, þannig að endastöð vagnsins verður í nýrri Upplýsingamiðstöð Akraneskaupstaðar við Kirkjubraut 8-10. Ný akstursleið verður einnig tekin upp, þannig að ekið verður inn í bæinn um Innnesveg – Garðabraut – Stillholt og Kirkjubraut og sömu leið til baka. Innan tíðar verður gengið frá stoppistöðvum á leiðinni.
Samhliða þessum breytingum verður skoðað að bæta við vagni í fyrstu ferð á morgnana þar sem farþegafjöldi í þeirri ferð hefur verið það mikill að vagninn rúmar ekki alla farþega í sæti.