Beint og óbeint kemur Akraneskaupstaður að útgáfu ýmiskonar kynningarefnis um Akranes og næsta nágrenni. Vegna fjölda fyrirspurna skal hér bent á ýmislegt nýlegt útgefið efni:
Akranes og nágrenni - yfirlitskort. Endurútgáfa með breytingum af gönguleiðakorti, götukorti, Akrafjalli, reiðleiðum, listaverkum og fl. Tilvalið fyrir heimamenn sem gesti.
Safnasvæðið á Akranesi. Bæklingar á íslensku og ensku um þau fjögur söfn sem mynda Safnasvæðið að Görðum.
Fjallið, fjaran, fólkið. Endurútgáfa með leiðréttingum af bæklingi um Akranes. Geymir götukort og lýsingu af bænum og sérkennum hans. Er að þessu sinni gefinn út á ensku og íslensku. Eldra upplag af þýskri útgáfu þessa bæklings verður notað meðan endist.
Írskir dagar. Kynningarbæklingur um írska daga á Akranesi 11.-14. júlí í sumar.
Sumarstörf 2002. Æskulýðs- og félagsmálaráð gefur árlega, á hverju vori, út rit um störf og afþreyingarmöguleika unga fólksins.
Menning og listir. Bæklingur fráfarandi menningarmála og safnanefndar um menningartengda starfsemi á Akranesi; listir, handverksfólk, tónlistarfólk og fleira.
Púlsinn. Skólablað Grundaskóla kom út í maímánuði. Vandað og skemmtilegt skólablað.
Árbók Akraness 2002. Útgefandi Uppheimar, útgáfufyrirtæki Kristjáns Kristjánssonar rithöfundar og bæjarlistamanns. Þett er annað árið í röð sem árbókin kemur út en á síðasta ári var hún lang-söluhæsta bókin á Akranesi. Bókin er vönduð í alla staði, prýdd fjölda ljósmynda, frásögnum af fólki, íþróttaannáll og m.m. fleira alls um 240 bls.
Hægt er að nálgast þetta efni á upplýsingamiðstöðvum bæjarins á Görðum og Kaffi 15 auk Olís-nestis og víðar. Árbók Akraness er seld í áskrift og bókabúðum.
Markaðs- og atvinnufulltrúi.
|