Í gær var námsstyrkur Akraneskaupstaðar afhentur. Skólaráð Fjölbrautaskóla Vesturlands og bæjarstjóri skipa nefnd sem gerir tillögu um veitingu styrksins og var nefndin sammála um að veita Eyrúnu Sif Ólafsdóttur frá Akranesi styrkinn að þessu sinni. Námsárangur Eyrúnar var frábær og hyggur hún á nám við tannlækningar í Háskóla Íslands næsta haust.
Styrkurinn er að fjárhæð 364 þús.kr. sem greiðist út í þrennu lagi. 10% styrksins greiðist við afhendingu, 40% við upphaf framhaldsnáms og eftirstöðvar að loknu fyrsta námsári, enda hafi styrkþegi staðist próf. Styrkurinn er veittur til þess nemanda Fjölbrautaskóla Vesturlands sem hefur náð góðum námsárangri, stundað námið af kostgæfni eða sýnt annað það sem verðskuldar styrkveitingu. Í ár bárust 16 umsóknir um styrkinn og voru þær allar mjög áhugaverðar og vakti athygli hversu fjölbreyttar fyrirætlanir voru um framhaldsnám.
Á myndinni eru Sveinn Kristinsson, forseti bæjarstjórnar, Eyrún Sif Ólafsdóttir styrkhafi og Gísli Gíslason bæjarstjóri við athöfnina í gær.