Börn og starfsfólk leikskólanna á Akranesi bjóða bæjarbúum á vorsýningu sína í Listasetrinu Kirkjuhvoli. Sýningin opnar laugard. 25. maí nk. kl. 15:00 og er opin til og með sunnud. 2. júní. Sýndir verða ýmsir listmunir úr starfi síðasta vetrar. Komið og skoðið afrakstur vetrarstarfsins hjá börnunum.