Gísli S. Einarsson, bæjarstjóri, ritar Pistilinn hér á heimasíðunni, en hann tók við störfum bæjarstjóra á bæjarstjórnarfundi þann 13. júní s.l. um leið og nýr meirihluti tók við stjórn bæjarins eftir sveitarstjórnarkosningar þann 27. maí s.l. Í Pistlinum segir m.a.: ,,Þær framkvæmdir sem stefna er sett á að verði lokið hið fyrsta eða í fyrstu viku júlímánaðar eru: Malbikun aðkeyrslu að Safnasvæði, klæðning Lambhúsastígs, aðkeyrsla við Grundaskóla frá Víkurbraut og fleira sem upptalið er í fyrrnefndum lista. Virðist vera að það gangi eftir svo og snyrting svæða með málningu og grasslætti." Smellið hér til að lesa Pistilinn í heild sinni.