Á síðasta ári ákváðu nokkur sveitarfélög á “stór höfuðborgarsvæðinu” að gera úttekt á menningarstarfsemi í sveitarfélögunum og kanna samstarfsmöguleika á sviði menningarmála. Sveitarfélögin eru ásamt Akraneskaupstað, Reykjavík, Árborg, Hafnarfjörður og Reykjanesbær.
Tilgangur skýrslunnar var að benda á markmið og leiðir til að auka samstarf sveitarfélaga á Suðvesturlandi á sviði menningarmála.
Fjallað er um styrkleika, veikleika og sóknarfæri sveitarfélaganna og menningarstofnana með tilliti til samstarfs í þágu öflugra menningarlífs og betri þjónustu við íbúa og ferðamenn ásamt formlegum tillögum til eflingar á samstarfi sveitarfélaganna.Í skýrslunni kemur m.a. fram að framlög Akraneskaupstaðar til menningarmála er hlutfallslega meira en í hinum sveitarfélögunum.
Skýrslan er unnin af ReykjavíkurAkademíunni en af hálfu Akraneskaupstaðar starfaði bæjarritari, Jón Pálmi Pálsson, að skýrslunni. Til að kynna sér skýrsluna í heild sinni, smellið hér