Samkvæmt skýrslu öldrunarfulltrúa sem lögð var fyrir bæjarráð til kynningar í vikunni var kostnaður Akraneskaupstaðar við heimaþjónustu á árinu 2005 18,3 milljónir króna. Þjónusta var veitt til 100 heimila aldraðra og 29 heimila öryrkja. Fjöldi starfsmanna sem vinna við þessa þjónustu eru 24 í tæplega 8 stöðugildum. Umsjón með heimaþjónustu hefur Sigrún Gísladóttir öldrunarfulltrúi.
Í skýrslunni kemur einnig fram að á árinu 2006 verður unnið áfram að uppbyggingu öldrunarþjónustu á Akranesi, m.a. að undirbúningi samþættingar félagslegrar heimaþjónustu og heimahjúkrunar. Einnig er í undirbúningi “heilsueflandi heimsóknir” til 75 ára einstaklinga og eldri sem ekki hafa notið þjónustu heimaþjónustu.