Samtök dagforeldra á Akranesi hafa ákveðið að hækka gjaldskrá sína frá og með 1. ágúst n.k. Gjaldskrá vegna daggæslu hækkar um 27,8% og matargjald hækkar um 9,1%. Gjaldskráin er einungis ætluð til nota fyrir dagforeldra sem hafa leyfi félagsmálaráðs Akraness til að taka börn í daggæslu. Öðrum er óheimilt að taka börn í gæslu gegn gjaldi. Dagforeldrum ber skylda til að sýna foreldrum gjaldskrána og gera þeim grein fyrir einstökum liðum hennar þegar barn byrjar í daggæslu.