ForsíðaÞjónustaStjórnsýslaMannlífBein útsending English Dansk Lithuanian Polski Deutsch
Hvað viltu gera?
Prenta vefsíðu
Fréttasafn
2013
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2012
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2011
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2010
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2009
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2008
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2007
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2006
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2005
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2004
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2003
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2002
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2001
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
Áskrift að fréttum:
Smelltu hér

Samningar um samstarf undirritaðir

12. maí 2006

Frá undirritun samninganna í dag
Nú síðdegis voru undirritaðir samningar á milli Akraneskaupstaðar og sveitarfélaganna sunnan Skarðsheiðar um samstarf í hinum ýmsu málaflokkum. Akraneskaupstaður, Leirar- og Melahreppur, Skilmannahreppur, Hvalfjarðar-strandarhreppur og Innri- Akraneshreppur skipuðu síðasta haust starfshóp til að endurskoða samstarfssamninga á milli sveitarfélaganna, skoða nýja samstarfsfleti og endskoða skipulagsskrár tveggja sameignarstofnana, Dvalarheimilisins Höfða og Byggðasafnsins í Görðum. Samstarfshópinn skipuðu frá Akraneskaupstað þeir Guðmundur Páll Jónsson, bæjarstjóri og Jón Pálmi Pálsson, bæjarritari.  Frá hreppnum voru þau Jón Haukur Hauksson, lögmaður og Ása Helgadóttir oddviti.

 

Starfshópurinn skilaði tillögum sínum til sveitarstjórnanna í marsmánuði og hafa sveitarfélögin nú samþykkt samningana og skipulagsskrárnar og voru þeir undirritaðir í Safnaskálanum að Görðum nú síðdegis.

 

Samningar sem hér um ræðir eru eftirfarandi:

 

  • Samstarfssamningur um brunavarnir og eldvarnareftirlit
  • Samstarfssamningur um ýmis málefni á sviði félags- og íþróttamála
  • Samstarfssamningur um félagsstarf aldraðra
  • Samstarfssamningur um bókasafnsþjónustu
  • Samningur um meðferð og eyðingu sorps
  • Samkomulag um rekstur tónlistarskóla

 

  • Skipulagsskrá fyrir Dvalarheimilið Höfða, Akranesi
  • Skipulagsskrá Byggðasafnsins í Görðum.

 

Einnig var undirrituð viljayfirlýsing um skoðun á frekara samstarfi sveitarfélaganna, m.a. á sviði almenningsíþrótta og útivistar, barnaverndar- og félagsmála og safnamála. Samningarnir sem hér um ræðir eru að megin stofni til endurnýjun á fyrri samningum ásamt nýjum samningum á sviði félags- og íþróttamála sem auka enn á mikið og farsælt samstarf á milli sveitarfélagnna, jafnframt eru skipulagsskrár sameignarstofnana endurskoðaðar og gerðar skilvirkari til samræmis við kröfur samtímans.

 

 

JPP/tg
 
 
 
RSS frá Akranesi
Akraneskaupstaður | kt:410169-4449 | Sími 433 1000 | Fax 433 1090 | Stillholt 16-18, 300 Akranes | Vefstjóri: akranes@akranes.is
Íslensku vefverðlaunin 2008