Bæjarráð hefur samþykkt samhljóða tillögu gjaldskrárnefndar um breytingu á reglum um lækkun og niðurfellingu fasteignaskatts til tekjulágra elli- og örorkulífeyrisþega, en gjaldskrárnefnd hefur undanfarið unnið að tillögugerð að stefnu Akraneskaupstaðar í gjaldskrármálum.
Breytingin gerir m.a. ráð fyrir að lækkanir verði tekjutengdar og nái eingöngu til tekjulágra elli- og örorkulífeyrisþega og verður viðmið stofn til útreiknings tekjuskatts, útsvars og fjármagnstekjuskatts á grundvelli staðfests skattframtals. Reglurnar eru hliðstæðar reglum í öðrum viðmiðunar sveitarfélögum.