Þann 10. maí var hið árlega blöðruskokk í lheilsuleikskólanum Garðaseli. Þessi dagur er á alþjóðavísu tileinkaður hreyfingu og því vel við hæfi að fara út og hreyfa sig. Eftir að hafa gert upphitunaræfingar eins og sönnum skokkurum sæmir skokkuðu nemendur og starfsfólk Garðasels um nánasta umhverfi skólans bæði fyrir og eftir hádegi . Elstu nemendur skólans eru að taka þátt í skokkinu í fjórða sinn og eru klárlega orðin vön að skokka og eiga mjög auðvelt með það. Smellið hér til að skoða fleiri myndir.
Þá finnst þeim það mjög skemmtilegt og ekki er laust að við sumum hlaupi kapp í kinn. Markmiðið með skokkinu er þó bara að hreyfa sig saman og njóta þeirrar vellíðunar sem hreyfingin veitir. Á skólaárinu eru þrjú skemmtiskokk í Garðaseli; í september er snúðaskokk, í maí er blöðruskokk og í íþróttavikunni í júní er Svala-skokk.