Í framhaldi af yfirlýsingu stjórnar Starfsmannafélags Akraness um fyrirhugaðan samruna við Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar samþykkti bæjarráð á fundi sínum í dag eftirfarandi: "Á undanförnum árum hefur samvinna og samstarf milli Akraneskaupstaðar og Reykjavíkurborgar stöðugt aukist. Nægir þar til að nefna samstarf í Orkuveitu Reykjavíkur, sameiningu hafna við Faxaflóa og almenningssamgöngur. Svæðið er því orðið eitt atvinnu- og þjónustusvæði.
Akraneskaupstaður samþykkir því að leitað verði eftir samvinnu við Reykjavíkurborg um launa- og kjaramál, enda verði tillaga stjórnar Starfsmannafélags Akraness um sameiningu þess félags við Starfsmannafélag Reykjavíkur samþykkt á almennum félagsfundi og Reykjavíkurborg samþykki fyrir sitt leyti að gerð kjarasamnings fyrir starfsmenn sem starfa hjá Akraneskaupstað verði á hendi hins sameinaða stéttarfélags.
Ákvörðun þessi er tekin að fenginni yfirlýsingu Starfsmannafélags Akraness um viðræður um sameiningu félagsins við Starfsmannfélag Reykjavíkurborgar. Bæjarstjóra og bæjarráði er falið að óska eftir viðræðum við borgaryfirvöld um málið.”