ForsíðaÞjónustaStjórnsýslaMannlífBein útsending English Dansk Lithuanian Polski Deutsch
Hvað viltu gera?
Prenta vefsíðu
Fréttasafn
2013
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2012
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2011
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2010
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2009
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2008
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2007
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2006
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2005
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2004
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2003
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2002
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2001
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
Áskrift að fréttum:
Smelltu hér

Vel heppnuð heimsókn 10. bekkinga frá Svíþjóð

6. maí 2002

Sænskir 10. bekkingar í heimsókn í Grundaskóla10. bekkirnir í Grundaskóla tóku á móti nemendum úr 10. bekk frá Tranås í Svíþjóð dagana 2. maí til 5. maí.  Í hópnum voru 23 nemendur  en auk þeirra voru  4 fullorðnir með í för.  Hópurinn var hér á Íslandi í viku skólaferðalagi og eyddi þremur dögum hér á Akranesi.    Heimsóknin var í alla staði mjög vel heppnuð.  Sænsku krakkarnir voru í heimagistingu og auk þess var farið í ferð að Lýsuhóli á Snæfellsnesi og gist þar frá föstudegi til laugardags. Undirbúningur að heimsókninni hefur staðið yfir í vetur og hafa nemendur verið í bréfaskriftum við Svíana frá því í haust. Lagt var upp með þessa heimsókn sem lífsleikni, sem er hluti af námi í grunnskólanum og sérstök námskrá er þar um.  Þetta var því líka liður í enskunáminu.
Foreldrum 10. bekkinga eru færðar þakkir fyrir góðan stuðning og frábæra gestrisni.  Sænsku kennararnir voru mjög hrifnir af Skagakrökkunum, fannst þau standa sig vel og getum við því verið stolt og ánægð með frammistöðu þeirra.  Kennararnir voru búnir að setja sig í samband við marga skóla á Reykjavíkursvæðinu, en enginn treysti sér til að taka á móti þeim.  Okkar krökkum fannst þetta áhugavert og ögrandi og stungu upp á því að bjóða þeim heim til sín og sýna með því íslenska gestrisni í verki.   
Heimsókn í Steinaríkið setti svo punktinn yfir i-ið hjá sænsku kennurunum og voru þeir  frá sér numdir af hrifningu yfir safninu og sögðust öll ætla að koma aftur til Íslands.

 
 
 
RSS frá Akranesi
Akraneskaupstaður | kt:410169-4449 | Sími 433 1000 | Fax 433 1090 | Stillholt 16-18, 300 Akranes | Vefstjóri: akranes@akranes.is
Íslensku vefverðlaunin 2008