ForsíðaÞjónustaStjórnsýslaMannlífBein útsending English Dansk Lithuanian Polski Deutsch
Hvað viltu gera?
Prenta vefsíðu
Fréttasafn
2013
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2012
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2011
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2010
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2009
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2008
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2007
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2006
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2005
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2004
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2003
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2002
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2001
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
Áskrift að fréttum:
Smelltu hér

Stórtónleikar Kirkjukórs Akraness á föstudaginn

18. apríl 2006

Eins og sjá má, ríkir gleði á æfingum Kirkjukórs Akraness. Sveinn Arnar Sæmundsson í hópi "stúlkna" úr altrödd kórsins 
Nú standa fyrir dyrum vortónleikar Kirkjukórs Akraness og verða þeir haldnir föstudagskvöldið 21. apríl í safnaðarheimilinu Vinaminni, Akranesi. Ákveðið hefur verið að bjóða upp á tvenna tónleika þetta kvöld, fyrri tónleikarnir hefjast kl. 19:30 og hinir síðari kl. 22:00.

Efnisskráin verður mjög fjölbreytt. Flutt verða íslensk ættjarðar- og þjóðlög, einsöngur, dúettar og óperukórar, m.a. úr Carmen, La Traviata, Sígaunabaróninum og  fleira. Stórsöngvararnir Sigrún Hjálmtýsdóttir, Óskar Pétursson og Auður Guðjohnsen, ásamt hinum bráðflinka píanista Jónasi Þóri, koma fram með kórnum. Hægt er að lofa mikilli gleði og fagurri tónlist þetta kvöld og í lok beggja tónleikanna verður fjöldasöngur og einstök, eftirminnileg uppákoma. Forsala aðgöngumiða verður í versluninni Bjargi, Stillholti 14 Akranesi, dagana 18. og 19. apríl.  Miðaverð er kr. 1500.

 

 

Kirkjukór Akraness/tg
 
 
 
RSS frá Akranesi
Akraneskaupstaður | kt:410169-4449 | Sími 433 1000 | Fax 433 1090 | Stillholt 16-18, 300 Akranes | Vefstjóri: akranes@akranes.is
Íbúakönnun 2013 Íslensku vefverðlaunin 2008