Ástæða er til að hvetja Skagamenn til að mæta niður að höfn og taka á móti skútunum, enda eflaust tignarlegt að sjá skúturnar svífa seglum þöndum að landi. Skúturnar hefja svo seinni umferð siglingamótsins kl. 10:00 í fyrramálið þegar ræst verður í Akraneshöfn aftur til Reykjavíkur. Faxaflóamótið er haldið í samstarfi við Akraneskaupstað, sem veitir vegleg verðlaun við athöfn sem fram fer á Hótel Barbró á Akranesi í kvöld.