Síðar í fréttinni furðar höfundurinn sig á því að þátttaka hafi ekki verið betri en raun var, þ.e.a.s. í lengri vegalengdunum: "Þar sem mikill metnaður er ávallt lagður í framkvæmdina, brautin góð og gott veður núna þá er undarlegt að svo fáir skyldu taka þátt í lengri vegalengdunum. Í 10 km voru einungis 27 og 48 í hálfmaraþoni, samanlagt 75 sem er það fæsta síðan árið 2000. Hver er ástæðan fyrir þessari fækkun? Er að fækka í þeim hópi sem stundar hlaup reglulega? Taka hlauparar þátt í færri hlaupum en áður - leggja e.t.v. meira upp úr undirbúningi fyrir tiltekin hlaup? Spyr sá sem ekki veit."
Þeir sem vilja lesa fréttina á hlaup.is í heild sinni geta smellt hér>
Þátttaka í skemmtiskokkinu var góð og Þuríður Skarphéðinsdóttir og fjölskylda voru meðal þeirra sem ekki létu sitt eftir liggja. Þuríður mætti ásamt börnum sínum, tengdabörnum og barnabörnum og mættu aðrir taka þessa öflugu fjölskyldu sér til fyrirmyndar.