Stjórnendum, kennurum, öðrum starfsmönnum og ekki síst nemendum skólans eru færðar innilegustu hamingjuóskir með þennan mikilvæga áfanga og viðurkenningu á því öfluga og góða starfi sem fram fer í Grundaskóla. Allir bæjarbúar á Akranesi geta einnig glaðst yfir þessari viðurkenningu og þeim sóma sem skólastarfi á Akranesi er sýndur með þessu.