Magnús tilkynnti í framsögu sinni þau stórtíðindi að íslenskt leiðsögukerfi í bifreiðar yrði tilbúið til notkunar nú í byrjun sumars. Ljóst er að um er að ræða mikla byltingu, ekki hvað síst fyrir erlenda ferðamenn sem sækja Ísland heim.
Helgi ræddi meðal annars um gríðarlegan kostnað fyrirtækjanna á Grundartanga við flutning starfsfólks til og frá vinnu. Einnig fór hann yfir hvernig Járnblendifélagið hefði stuðlað að minnkun landflutninga með þungavöru með samningum um útskipun frá Grundartangahöfn í stað útskipunar í Reykjavík.
Sturla fór yfir brýnustu verkefni samgönguráðuneytisins sem og sína framtíðarsýn hvað varðar Akranessvæðið. Var þar meðal annars nefnd þverun Grunnafjarðar og færsla vegstæðis undir Hafnarfjalli sem yrði gríðarleg samgöngubót og kæmi til með að styrkja bæði Borgarfjörð og Akranes. Einnig fór Sturla yfir möguleika varðandi legu Sundabrautar sem kæmu til með að vera vegtenging allt frá Hvalfjarðagöngum til Reykjavíkur.
Fjölmargar spurningar komu úr sal þegar opnað var á pallborðsumræður en auk framsögumanna voru í pallborði Gísli Gíslason bæjarstjóri á Akranesi, Páll S. Brynjarsson bæjarstjóri í Borgarbyggð og Dagur B. Eggertsson formaður skipulagsmála Reykjavíkur. Líflegar umræður urðu og snörp skoðanaskipti og ljóst að það sem brann á fundarmönnum var gjaldtaka í göngin og að Sundabraut kæmi sem fyrst til framkvæmda.
Um fundinn er einnig fjallað á heimasíðu Spalar ehf. – www.spolur.is.
Í lok fundar var samþykkt eftirfarandi ályktun:
Borgarafundur haldinn á Akranesi miðvikudaginn 27.apríl 2005 ályktar eftirfarandi:
Svæðið norðan Hvalfjarðar er hluti atvinnusvæðis höfuðborgarsvæðisins. Íbúar sækja þangað vinnu óháð búsetu og er veggjald í Hvalfjarðargöngum umtalsverð skattlagning á íbúa og fyrirtæki. Gjaldið er alvarleg hindrun í eðlilegri þróun byggðar og samkeppnishamlandi fyrir fyriræki í framleiðslu og þjónustu, jafnframt því að vera hemill á ferðaþjónustu á svæðinu norðan ganga.
Fundurinn fagnar yfirlýsingu samgönguráðherra um bætta vegtengingu til vesturs og norðurs með þverun Grunnafjarðar og framkvæmdir við Sundabraut. Jafnframt skorar fundurinn á samgönguráðherra og stjórn Spalar að leita allra leiða til að lækka gjaldið í Hvalfjarðargöngin enn frekar og fella það út.
|