ForsíðaÞjónustaStjórnsýslaMannlífBein útsending English Dansk Lithuanian Polski Deutsch
Hvað viltu gera?
Prenta vefsíðu
Fréttasafn
2013
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2012
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2011
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2010
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2009
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2008
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2007
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2006
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2005
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2004
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2003
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2002
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2001
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
Áskrift að fréttum:
Smelltu hér

Styrkir til íþrótta- og tómstundafélaga á Akranesi

15. mars 2005

Forsvarsmenn íþrótta- og tómstundafélaga ÍA

Afhending styrkja á vegum Akraneskaupstaðar til íþrótta- og tómstundafélaga á Akranesi vegna barna- og unglingastarfs fór fram föstudaginn 11. mars, kl:16:00 í Bíóhöllinni. Veittir voru styrkir að upphæð 1,7 milljónir kr. til félaganna að þessu sinni  en það er gert tvisvar á ári, annars vegar fyrir tímabilið janúar - júní og hins vegar fyrir júlí - desember. Að þessu sinni skiptist styrkurinn á milli þrettán félaga sem hafa verið með félagsstarf fyrir unglinga á aldrinum 6-19 ára.

 
Við sama tækifæri afhenti Íþróttabandalag Akraness viðbótar styrk að upphæð 3 milljónir kr. sem skiptist á öll aðildarfélög ÍA og voru notaðar við skiptinguna sömu aðferðir og  Akraneskaupstaður notar til þessara styrkveitinga að því undanskildu að ekkert aðildarfélag fékk minna en 100.000 kr.
Það má segja að þessir peningar séu afrakstur sem orðið hafi til vegna sjálfboðaliða í íþróttahreyfingunni,  sem unnu í sjálfboðavinnu við byggingu íþróttamannvirkja á Akranesi, í tíu ára framkvæmdasamningi sem ÍA og Akraneskaupstaður gerðu sín á milli á árunum  1994 - 2004 og  gerður var upp nú nýlega. 
 
Þá voru veittar viðurkenningar vegna Íslands- og bikarmeistaratitla sem iðkendur íþrótta  á Akranesi fengu á árinu 2004, en samtals voru það 81 titlar í 8 íþróttagreinum, þ.e. knattspyrnu, sundi, badminton, fimleikum, golfi, keilu, íþróttum fatlaðra og línudansi.   Þessi árangur sýnir okkur að framtíðin á Skaganum er björt og vel virðist unnið á flestum vígstöðvum.
Áfram ÍA!!!
 
Að lokinni  afhendingu var gestum boðið upp á kvikmyndasýningu og virtust allir skemmta sér hið besta eins og vera ber.
HKJ / RÓ
 
 
 
RSS frá Akranesi
Akraneskaupstaður | kt:410169-4449 | Sími 433 1000 | Fax 433 1090 | Stillholt 16-18, 300 Akranes | Vefstjóri: akranes@akranes.is
Íslensku vefverðlaunin 2008