Stjórn Dvalarheimilisins Höfða hefur samþykkt að taka upp viðræður við stofnaðila heimilisins um hvort sækja eigi um til ríkisins fjárveitingu til byggingar nýrrar sjúkradeildar, að hluta til lokaðrar deildar fyrir heilabilaða. Ef af verður er gert ráð fyrir að umrædd bygging myndi rísa norðaustan við dvalarheimilið í átt að Innnesvegi. Bæjarráð Akraness hefur nú þegar fagnað hugmyndum stjórnar Höfða varðandi ofangreinda samþykkt og er gert ráð fyrir viðræðum við heilbrigðisráðuneytið á næstu vikum varðandi málið.