Brúðuleikhúsið Númi á ferð og flugi var í heimsókn í leikskólanum Garðaseli í vikunni, en það er á vegum Slysavarnafélagsins Landsbjargar. Slysavarnadeilda kvenna á Akranesi styrkti sýninguna um 20.000 kr. Landsbjörg hefur í gegnum tíðina unnið ötullega að barnaslysavörnum og hefur nú fengið Brúðuleikhús Helgu Steffensen til liðs við sig og sett upp þetta verk Númi á ferð og flugi.
Verkið er byggt á bókinni Númi og höfuðin sjö eftir Sjón. Sagan fjallar um strák sem lendir í miklum hrakningum þar til einn góðan veðurdag að hann fer að nota höfuðið og hugsa um afleiðingar uppátækja sinna. Markmiðið með sýningunni er að vekja börn til umhugsunar um þær hættur sem leynast í nánasta umhverfi þeirra. Óhætt er að segja að sýningin hafi hitt í mark því stundum mátti heyra saumnál detta í Garðaseli þar sem 98 börn voru samankomin svo hrifin voru þau. Mikil ánægja var með þessa skemmtilegu sýningu þar saman fóru skemmtun, fróðleikur og söngur. Sjá myndir