Yfir 20 stofnanir og fyrirtæki á Akranesi tóku þátt í svokölluðum Gestagangi sl. föstudag og buðu til sín gestum víðsvegar að af landinu. Gert er ráð fyrir að af þessu tilefni hafi á annað hundruð gestir komið á Skagann. Almennt þótti þessi dagur takast vel og átti gott veður m.a. þátt í að gera góðan dag enn betri.
Akraneskaupstaður var þátttakandi í gestagangi og bauð bæjarstjórn af því tilefni bæjarstjórn Borgarbyggðar í heimsókn. Á fundi bæjarstjórnanna var rætt samstarf í víðum skilningi, svo sem málefni Grundartangahafnar, Heilbrigðiseftirlits Vesturlands, samvinnu og hugsanlega sameiningu sveitarfélaga, Sjúkrahús og heilsugæslumál, Fjölbrautaskólann, almenningssamgöngur og fleira. Að sögn Jóns Pálma Pálssonar bæjarritara á Akranesi var fundurinn mjög gagnlegur og allir á einu máli um að flötur væri á aukinni samvinnu þessara sveitarfélaga. Ákveðið var að stefna að fleiri sameiginlegum fundum bæjarstjórnanna á næstu misserum.