|
Rafþjónusta Sigurdórs ehf
Megin viðfangsefni Rafþjónustu Sigurdórs er rafverktakastarfsemi og verslunarrekstur. Helstu viðfangsefnin á rafmagnsverkstæðinu eru nýlagnir og viðhald ýmiskonar svo sem í íbúðarhús, sumarhús, opinberar stofnanir og fyrir allan iðnað. Einnig uppsetningar á ýmiskonar viðvörunarkerfum; loftnets-, síma- og tölvulagnir, bruna- og þjófavarnarkerfum og fleiru. Verkefni koma í dag víða að og er markaðssvæði fyrirtækisins mikið að vaxa. Í verslun Rafþjónustu Sigurdórs er mjög fjölbreytt úrval heimilistækja og ljósa á um 200 fermetra gólfrými. Í dag er starfsmannafjöldinn 9 manns, sjö á verkstæði og tveir í verslun. Heimilisfang: Skagabraut 6.
Borgarprýði
Starfsemi Borgarprýði má skipta í eftirfarandi flokka: Garðvöruverslun þar sem seldar eru garðplöntur og annað sem tengist garðinum svo sem pottar, fræ, laukar, mold, garðplöntur og garðverkfæri. Garðaþjónusta þar sem veitt er alhliða þjónusta á því sviði allt frá A til Ö og má þar nefna trjáklippingar, hellulagnir, gróðursetningu, grasslátt fyrir bæjarfélög, húsfélög og fleira. Gróðrarstöð þar sem ræktaðar eru ýmsar gerðir garðplantna til smásölu og heildsölu. Blöndun og pökkun gróðurmoldar sem seld er á innanlandsmarkað jafnt í heildsölu sem smásölu. Fyrirtækið sem er tæplega 20 ára er eitt stærsta sinnar tegundar utan höfuðborgarinnar. Opnunartímar í apríl: Virka daga 9-19, laugardaga 9-17, opið í hádeginu en lokað sunnudaga. Í maí er opnunartími virka daga 9-21, laugardaga 9-19 og sunnudaga 10-19 og opið í hádeginu. Heimilisfang: Smiðjuvellir 12-20.
Sandblástur Sigurjóns
Fyrirtækið sérhæfir sig í yfirborðsmeðhöndlun á stáli þ.m.t. sandblástur, málun og húðun og háþrýstihreinsun. Meðhöndlun á olíutönkum, skipum, vinnuvélum, vörubifreiðum og fleiru. Stærsti klefi hér á landi til sandblásturs, staðsettur að Höfðaseli 1, Akranesi auk þess færanlegur sandblastursbúnaður. Ferðumst um land allt. Fullkominn háþrýstihreinsunarbúnaður. Lögð er mikil áhersla á umhverfisvæna hreinsun. Sandblástur Sigurjóns er til húsa að Höfðaseli 1, nýju iðnaðarhverfi gegnt Æðarodda.
Öryggisþjónusta Vesturlands ehf
Starfsemi Öryggismiðstöðvar Vesturlands er margþætt. Fyrirtækið þjónar öllum fyrirtækjum og stofnunum ásamt einkaheimilum og skipaflota Haraldar Böðvarssonar á Akranesi. Fyrirtækið sér um að ganga frá húsnæði fyrirtækja og stofnana í lok vinnudags. Hefur eftirlit með þeim, sinnir sértækum verkefnum. Selur og setur upp öryggiskerfi, hvaða nafni sem þau nefnast og annast þjónustu við þau. Starfssvæði er Akranes og nágrenni auk sumarbústaðahverfa á Vesturlandi. Fastir starfsmenn eru 3, auk afleysingamanna. Öryggisverðir þess eru sérþjálfaðir og til í allt. Gangi áætlanir fyrirtækisins eftir mun verða veruleg fjölgun starfsmanna á næstu tveimur árum. Fyrirtækið er til húsa að Deildartúni 6.
Gáma
Sorpmóttökustöðin Gáma á Höfðaseli 18, tekur á móti öllu sorpi Akurnesinga. Þar fer fram móttaka á spilliefnum (olíu, málningu, rafhlöður, rafgeymar og leysiefni). Þar eru gámar fyrir flokkað og almennt sorp. Móttaka í sorpmóttökustöð er endurgjaldslaus (allt að 2 rúmmetrum). Gáma er aðili að FENÚR, fagráð um endurvinnslu úrgangs. Afgreiðslutími sorpmóttöku er; kl. 08:00 - 12:00 mánudaga - fimmtudaga og til 17:00 á föstudögum. Á laugardögum er opið frá kl. 13:00 - 17:00.
Verslunin Bjarg
Verslanir Bjargs á Akranesi eru tvær. Annars vegar er dömu- og herrafataverslun að Stillholti 14 þar sem selt er mikið úrval gæðafatnaðar á góðu verði auk snyrtivara fyrir dömur og herra. Hinsvegar rekur Bjarg húsgagnaverslun að Skólabraut 21. Þar er mikið úrval húsgagna fyrir heimili og skrifstofur. Fyrirtækið var stofnað 1966 og hefur frá 1973 verið í eigu núverandi eigenda.
Trésmiðja Þráins E Gíslasonar
Trésmiðjan er stofnuð í febrúar 1996 og er til húsa að Hafnarbraut 8. Helstu þættir starfseminnar eru nýbyggingar á íbúðarhúsnæði, almenn verktakastarfsemi og rekstur trésmiðju. Vélar trésmiðjunar eru flestar nýjar og mjög fullkomnar, svo sem einn fullkomnasti og öflugasti tölvustýrði yfirfræsari landsins. Í honum er hægt að framleiða ótrúlegustu hluti á einfaldan hátt. Helstu framleiðsluvörur eru innihurðir, innréttingar og skápar í íbúðarhús en þær er hægt að fá eftir óskum hvers og eins. Við komum einnig heim til fólks og tökum mál og teiknum innréttingar því að kostnaðar lausu. Einnig smíðum við innréttingar í skóla og stofnanir. Tökum einnig að okkur ýmiskonar sérsmíði. Að því ógleymdu að við erum "ljúfmenni í samningum".
Glerhöllin ehf.
Glerhöllin er til húsa að Ægisbraut 30. Fyrirtækið framleiðir tvöfalt einangrunargler, öryggisgler, vírgler og spegla eftir málum. Framleiðsluábyrgð er 5 ár á tvöföldu gleri. Framleiðslan er gæðavottuð. Lögð er áhersla á fljóta og góða þjónustu og er varan send hvert á land sem er. Einnig rekur fyrirtækið verslun á sama stað með blóm og gjafavöru, búsáhöld og leikföng auk þess flest sem viðkemur glerjun. Mesta úrval á einum stað á öllu Vesturlandi. Opið virka daga frá 10-18, laugardaga 12-16. Athugið að opið er á sunnudögum í apríl.
Verslunin Nína ehf.
Verslunin var stofnað 20. ágúst 1982 og verður því tvítug á þessu ári. Verslunin byrjaði í 30 fermetra rými en er nú í 380 ferm. til húsa að Kirkjubraut 4-6 á Akranesi. Lögð er áhersla á hátt þjónustustig, úrval vandaðs fatnaðar og skó fyrir dömur, herra, unglinga og börn. Opnunartími verslunarinnar er frá kl. 10-18 virka daga og laugardaga kl. 10-16.
Steinaríki Íslands
Steinaríki Íslands, Safnaskálanum á Görðum er langstærsta innisafn íslenskra steina og steingervinga á landinu. Það er sett um á mjög sérstæðan og óvenjulegan hátt og gestir geta snert og handfjatlað marga sýningargripina. Í safninu er deild er sýnir gerð og legu Hvalfjarðarganganna, vinnuferli, bora, borkjarna og áhugaverða steina úr göngunum. Í tengslum við Steinaríkið er Maríu-Kaffi, veitingastofa fyrir 60 manns og hefur stofan vakið mikla athygli fyrir óvenjulegar innréttingar. Þá er og verslun með mikið úrval íslenskra skraut- og orkusteina ásamt skartgripum og öðru handverki.
Trico ehf. - Foxhall ehf.
Trico er yfir 20 ára fyrirtæki en vörumerkið Trico hefur verið til í hálfa öld. Helstu verkefni eru framleiðsla á sokkum af öllum gerðum og stærðum á íslenskan markað. Einnig hefur fyrirtækið á undanförnum árum verið að framleiða íhluti í framleiðslu Össurar hf., stoðtækjaframleiðanda. Til húsnæðis á sama stað er skrifstofa og þróunardeild Foxhall ehf. sem sérhæfir sig í þróun og framleiðslu á eldvarnarefnum til textíliðnaðar, einkum fyrir stóriðju víða um heim. Hjá fyrirtækinu vinna í dag 9 manns. Fyrirtækið er til húsa að Kalmansvöllum 3.
Model ehf.
Verslunin Model sérhæfir sig í sölu gjafavöru, blóma, skartgripa og verðlaunagripa fyrir ólík tækifæri ásamt áletrun á verðlaunagripi. Model er 10 ára um þessar mundir. Verslunin er í eigin húsnæði að Stillholti 16-18 og starfsmenn eru 3-4. Mikil áhersla er lögð á persónulega og góða þjónustu. Verslunin er opin alla daga vikunnar. Heimsendingar ef óskað.
Þorgeir og Helgi
Framleiðsla á steypu og forsteyptum einingum undir nafninu Smellinn er aðalstarfsemi Þorgeirs og Helga hf. Samlokueiningar með veðrunarþolnu yfirborði og í mörgum litum, innveggir, sökkulveggir með einangrun og múrlagi og loftaplötur eru allt saman framleiddar undir Smellinn heitinu. Forsteyptar Smellinn húseiningar eru framleiddar samkvæmt ISO 9001 og En 13369, sem er samevrópskur staðall um framleiðslu forsteyptra eininga. Að auki eru Smellinn einingar vottaðar af Rannsóknarstofnun byggingariðnaðarins, samkvæmt gildandi byggingarreglugerð. Steypuframleiðslan fer fram í einni fullkomnustu steypustöð landsins. Steypan er framleidd skv. IS En 206 staðlinum sem er samevrópskur staðall um framleiðslu á steypu. Að auki hefur fyrirtækið sérhæft sig í niðurlögn á steypu í götur, plön og gangstéttir, auk þess sem fyrirtækið hefur séð um viðhald stórra verksmiðjugólfa. Fyrirtækið er til húsa í nýja iðnaðarhverfinu við Höfðasel.
Hljómsýn
Hljómsýn er verslunar- og þjónustufyrirtæki á Akranesi. Verslunin er í 2 deildum, annarsvegar raftækjadeild sem selur og þjónustar öll almenn raftæki ásamt því að selja tölvubúnað og ýmsa sérvöru eins og skrifstofutæki, þjófavarnar- og hljóðkerfi. Hin deildin er afþreyingardeild sem selur m.a. tónlist, tölvuleiki og myndbönd og þar er einnig myndbandaleiga og sjoppa. Fyrirtækið er til húsa að Stillholti 23.
Dvalarheimilið Höfði
Dvalarheimilið Höfði á Akranesi er dvalar- og hjúkrunarheimili fyrir aldraða og öryrkja og er í eigu Akraness og sveitarfélaganna fjögurra sunnan Skarðsheiðar. Heimilið hefur starfað síðan 1978. Á heimilinu búa 39 í almennu þjónusturými og 39 eru á hjúkrunardeild, eða alls 78. Starfsmenn eru nú 88 í 62 stöðugildum. Á Höfða er einnig almenn félags- og þjónustumiðstöð fyrir alla aldraða; þar er rekin dagdeild og á lóð heimilisins hafa verið reist 27 raðhús. Flutningsþjónusta er á mat til aldrðra og öryrkja úti í bæ. Ferðaþjónusta fyrir fatlaða á vegum Akraness er einnig rekin frá heimilinu. Dvalarheimilið er til húsa við Sólmundarhöfða.
Viðskiptaþjónusta Akraness ehf.
Viðskiptaþjónusta Akraness er alhliða bókhalds- og ráðgjafarfyrirtæki til húsa að Stillholti 23. VTHA býður upp á færslu bókhalds og endurskoðun, einnig alla almenna rekstrar- og skattaráðgjöf fyrir fyrirtæki og einstaklinga. Við bjóðum upp á launaútreikninga og alla aðra skrifstofuþjónustu fyrir fyrirtæki. Sjáum um stofnun Ehf og yfirfærslu úr einstaklingsrekstri yfir í Ehf. Einnig gerum við skattframtöl fyrir einstaklinga. Hjá VTHA starfa alls 7 manns, þar af tveir viðskiptafræðingar og einn iðnrekstrarfræðingur. Auk þess erum við í samstarfi við löggiltan endurskoðanda. VTHA er aðili að Félagi bókhaldsstofa.
Straumnes
Fyrirtækið Straumnes var stofnað árið 1994 af starfsmönnum rafmagnsverkstæðis Þorgeirs & Ellerts hf. Fyrirtækið annast alhliða raflagnaþjónustu jafnt fyrir almennan markað og iðnfyrirtæki. Straumnes hefur einnig sérhæft sig í raflögnum í skipum og fiskvinnslu. Fyrirtækið hefur sérhæft sig í iðnstýringum og forritun iðntölva og mikill hluti af starfsemi fyrirtækisins er tengt því. Hjá Straumnesi vinna nú 10-12 manns.
Skaginn hf.
Skaginn hf. varð til með sameiningu stáldeildar Þorgeirs & Ellerts hf. og IÁ-smiðju ehf. árið 1998. Fyrirtækið stendur því á gömlum grunni. Skaginn hf annast hönnun og framleiðslu á búnaði fyrir fiskvinnslu bæði á landi og sjó. Vöruflóra Skagans hf. er mjög fjölbreytt og má þar nefna vinnslukerfi fyrir uppsjávarfisk, krapakerfi, lausfrysta, karaflutningakerfi, karahvolfara, kerfi fyrir brettastöflun og brettaflutninga, kassamötunarkerfi, vigtarkerfi, pökkunarkerfi, saltsprautivélar, snyrtilínur o.fl. Skaginn hf. hefur að markmiði að leysa óskir viðskiptavina sinna og sníða búnaðinn að þörfum hans. Skaginn hannar heildalausnir og tengir búnað annarra framleiðenda sínum, ef þörf er á. Skaginn hf. hefur hannað og framleitt vinnslubúnað fyrir vinnslu erlendis og á Íslandi, jafnt fyrir fiskiskip og í landi. Hjá fyrirtækinu starfa um 70 manns, þar af 10 í hönnun og markaðssetningu, en allir starfsmenn markaðsdeildar eru tæknimenntaðir.
Sjúkrahús og heilsugæslustöð Akraness
Sjúkrahúsið og heilsugæslustöðin á Akranesi (SHA) skiptist í sjúkrasvið og heilsugæslusvið. Þess er minnst á árinu að 50 ár eru liðin frá því stofnunin tók til starfa. Á sjúkrasviði er starfrækt fjölgreinasjúkrahús með örugga vaktþjónustu allan sólarhringinn árið um kring. Sjúkrahúsið veitir almenna og á vissum sviðum sérhæfða sjúkrahúsþjónustu á lyflækningadeild, handlækningadeild, fæðinga- og kvensjúkdómadeild, hjúkrunar- og endurhæfingadeild og á vel búnum stoðdeildum þar sem höfuð áhersla er lögð á þjónustu við íbúa Vestur- og Suðvesturlands. Jafnframt er vaxandi árhersla lögð á þjónustu við íbúa höfuðborgarsvæðisins. Á heilsugæslusviði er veitt almenn heilsugæsluþjónusta fyrir íbúa í heilsugæsluumdæmi Akraness með forystuhlutverk varðandi almenna heilsuvernd og forvarnarstarf. SHA tekur þátt í menntun heilbrigðisstétta í samvinnu við Háskóla Íslands og aðrar menntastofnanir. Starfsmenn stofnunarinnar eru um 240 talsins.
Akraneskaupstaður
Akranes er stærsta sveitarfélagið á Vesturlandi með 5517 íbúa miðað við 1. desember sl. 60 ár eru frá því bærinn öðlaðist kaupstaðarréttindi og verður þess minnst á árinu. Á vegum bæjarsjóðs Akraneskaupstaðar starfa hátt í 400 manns við ýmis þjónustustörf og má þar sérstaklega nefna þrjá leikskóla, tvo einsetna grunnskóla, ásamt ýmsum öðrum stofnunum. Stjórnsýsluhús bæjarins er að Stillholti 16-18. Bæjarstjóri er Gísli Gíslason.
Þorgeir og Ellert hf.
Þorgeir & Ellert hf. var stofnað 1994 á grunni eldra fyrirtækis með sama nafn. Það fyrirtæki var stofnað 1928 þannig að heildarsagan spannar yfir 70 ára tímabil. Helstu svið sem Þorgeir & Ellert hf. hefur lagt áherslu á eru skipasmíðar, skipaviðgerðir og þjónusta við útgerðarfélög. Alhliða málmsmíði og þjónusta. Þorgeir & Ellert hf. hefur yfir að ráða skipalyftu, stóru athafnasvæði utandyra fyrir skipaviðgerðir auk 3000 m2 verkstæðisbyggingar. Möguleikar eru á að taka skip inn til breytinga og viðhalds. Hlutverk félagsins er að bjóða hagkvæma viðhaldsþjónustu og nýsmíði í samræmi við þarfir viðskiptavina félagsins með sterkum tengslum, áreiðanleika, gæðum og hagkvæmri þjónustu.
Geca hf.
GECA var stofnað árið 1999 með það að markmiði að verða leiðandi fyrirtæki á alþjóðlega vísu í notkun koltvísýrings (Co2) við framleiðslu á byggingarplötum og byggingareiningum. Framleiðslutæknin byggir á 15 ára þróunarvinnu sem nú sér fyrir endann á þar sem fyrir liggur að hefja framleiðslu fyrir íslenska markaðinn á næstu vikum í húsnæði Þorgeirs & Ellerts hf. á Akranesi. Framleiðslutæknin og afurðirnar eru verndaðar með alþjóðlegum einkaleyfum og hyggst félagið á næstu misserum markaðssetja verksmiðjur til framleiðslu byggingareininga af þessu tagi á alþjóðlegum markaði. Einingarnar hafa verið prófaðar af Rannsóknarstofnun byggingariðnaðarins og sýna niðurstöður að eiginleikar hvað varðar burðarþol og brotþol eru einstakir miðað við efnisþykkt og þunga. Fyrsta verkefnið er þegar í höfn og er það milliloft fyrir námsmannahús að Naustabryggju. Fyrirhugað er að hefja framleiðslu af fullum krafti á næstu vikum eða um leið og búið er að setja upp allan búnað.
|