Lokaathöfn Stóru upplestrarkeppninnar á Akranesi fór fram í Vinaminni miðvikudaginn 6. mars. Þetta er í 4. skipti sem nemendur í 7. bekkjum grunnskólanna taka þátt. Eiríkur Jónsson laganemi og fyrrverandi formaður Stúdentaráðs ávarpaði gesti og ræddi m.a. um mikilvægi þess að þora að standa fyrir framan hóp og flytja mál sitt. Einnig lék Katrín B. Þórhallsdóttir á þverflautu og Helga Kvam lék undir á slaghörpu. Fyrir keppnina fór fram samkeppni um myndskreytingar boðskorts og urðu myndir Evu S. Þorkelsdóttur og Ragnheiðar Smáradóttur fyrir valinu.
Undirbúningur undir sjálfa keppnina hefur staðið frá Degi íslenskrar tungu 16. nóvember sl. Undankeppni fór fram 21. febrúar og voru þá valdir 6 nemendur frá hvorum skóla sem þóttu skara fram úr. Við lokaathöfnina lásu nemendur brot úr Heimsljósi Halldórs K. Laxness, ljóð eftir Ingibjörgu Haraldsdóttur og ljóð að eigin vali. Fjögurra manna dómnefnd fékk svo það erfiða hlutverk að velja þrjá bestu upplesarana og var niðurstaðan sú að Regína Björk Sigurðardóttir fékk fyrstu verðlaun, Una Harðadóttir önnur verðlaun og Jóhanna Gísladóttir þriðju. Regína og Una eru í Brekkubæjarskóla og Jóhanna í Grundaskóla. Sparisjóðirnir styðja keppnina um allt land og veita verðlaunin. Áætlað er að um 130 gestir hafi notið athafnarinnar. Keppnin er í umsjá héraðsnefndar en í henni sitja Erna Eyjólfsdóttir frá Heimili og skóla, Guðbjörg Árnadóttir frá Samtökum móðurmálskennara og Helga Gunnarsdóttir frá Skólaskrifstofu Akraness