ForsíðaÞjónustaStjórnsýslaMannlífBein útsending English Dansk Lithuanian Polski Deutsch
Hvað viltu gera?
Prenta vefsíðu
Fréttasafn
2013
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2012
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2011
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2010
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2009
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2008
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2007
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2006
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2005
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2004
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2003
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2002
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2001
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
Áskrift að fréttum:
Smelltu hér

Kaup á prentgripum úr Leirár- og Beitistaðaprentsmiðju

í tilefni 60 ára afmælis Akraneskaupstaðar

27. febrúar 2002

Í tilefni af 60 ára afmæli Akraneskaupstaðar ákvað bæjarstjórn að festa
kaup á prentgripum úr Leirár- og Beitistaðaprentsmiðju sem séra Björn
Jónsson, fyrrverandi sóknarprestur, hefur safnað á löngum tíma. Þriðjudaginn
26. febrúar var athöfn í Bæjar- og héraðsbókasafninu þar sem séra Björn
afhenti forseta bæjarstjórnar þessa gripi að viðstaddri bæjarstjórn,
menningarmála- og safnanefnd auk fleiri gesta. Séra Björn hefur safnað meirihluta þess sem prentað var að Leirá og síðar Beitistöðum á árunum 1795-1818 og flest af því fágætt og torfengið. Auk þess fylgdi með væn útgáfa af Lögbergi sem gefið var út af Íslendingum í Kanada auk annarra prentgripa sem tengjast Akranesi með beinum hætti. Hér er um mikil menningarverðmæti að ræða sem verða varðveitt á Bæjar- og héraðsbókasafninu í framtíðinni.  Þess má geta að sama dag og afhendingin fór fram þá átti Bæjar- og héraðsbókasafnið 30 ára starfsafmæli í Bókhlöðunni.  Á myndinni hér að ofan eru séra Björn Jónsson, Sveinn Kristinsson, forseti bæjarstjórnar og Birna Gunnlaugsdóttir, formaður menningarmála- og safnanefndar.

 
 
 
RSS frá Akranesi
Akraneskaupstaður | kt:410169-4449 | Sími 433 1000 | Fax 433 1090 | Stillholt 16-18, 300 Akranes | Vefstjóri: akranes@akranes.is
Íslensku vefverðlaunin 2008