ForsíðaÞjónustaStjórnsýslaMannlífBein útsending English Dansk Lithuanian Polski Deutsch
Hvað viltu gera?
Prenta vefsíðu
Fréttasafn
2013
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2012
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2011
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2010
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2009
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2008
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2007
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2006
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2005
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2004
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2003
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2002
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
2001
janfebmaraprmaíjún
júlágúsepoktnóvdes
Áskrift að fréttum:
Smelltu hér

Breytingar á stjórn Hitaveitu Akraness og Borgarfjarðar

15. febrúar 2002

Stjórn Hitaveitu Akraness og Borgarfjarðar

Fimmtudaginn 14. febrúar s.l. hélt stjórn Hitaveitu Akraness og Borgarfjarðar síðasta fund stjórnarinnar áður en Orkuveita Reykjavíkur tók reksturinn yfir.  Á fundinum voru ársreikningar fyrir árið 2001 samþykktir, drögum að breyttum samþykktum vísað til eigendafundar og samþykkt að beina því til næstu stjórnar að láta taka saman sögu HAB.  Að stjórnarfundinum loknum var haldinn eigendafundur HAB þar sem samþykktunum var breytt og kosin ný stjórn.  Stjórnarmenn verða nú aðeins þrír í stað fimm áður og skipa Ásgeir Margeirsson og Eysteinn Hauksson frá Orkuveitu Reykjavíkur og Helgi Bjarnason frá iðnaðarráðuneytinu nýja stjórn.  Endurskoðun verður áfram hjá Endurskoðunarskrifstofu Jóns Þórs Hallssonar.  Með þessum breytingum var síðasta skrefið stigið í sameiningarferli orkuveitna á Akranesi og í Borgarfirði við Orkuveitu Reykjavíkur.  Orkuveitan fer nú með eignarhlut sveitarfélaganna í HAB og nemur hann 79,3% en ríkissjóður á 20,7%.  Gísli Gíslason, sem verið hefur framkvæmdastjóri veitunnar lætur af þeirri stöðu, en Hannes Fr. Sigurðsson verður framkvæmdastjóri veitunnar.

Á myndinni eru Gunnar Sigurðsson, Gísli Gíslason, Ríkharð Brynjólfsson, Kristmar Ólafsson, Sveinn Kristinsson og Kjartan Kjartansson. Á myndina vantar Helga Bjarnason.

Helstu niðurstöður úr ársreikningi HAB eru þessar:

 

 Rekstrartekjur  177.792 þkr. 
 Rekstrargjöld    54.501 þkr. 
 Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir og vexti  123.290 þkr. 
 Afskriftir    70.242 þkr. 
 Fjármagnsliðir (110.534 þkr.) 
 Tap ársins (  57.486 þkr.)
 Eignir  865.394 þkr.
 Skuldir samtals  907.719 þkr.
 Handbært fé frá rekstri   68.601 þkr.
 Handbært fé í ársbyrjun   81.504 þkr.
 Handbært fé í árslok   38.268 þkr. 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 
 
 
RSS frá Akranesi
Akraneskaupstaður | kt:410169-4449 | Sími 433 1000 | Fax 433 1090 | Stillholt 16-18, 300 Akranes | Vefstjóri: akranes@akranes.is
Íslensku vefverðlaunin 2008