Gengið hefur verið frá tímabundinni ráðningu Skúla Ragnars Skúlasonar í stöðu aðstoðarskólastjóra Tónlistarskólans til 31. júlí 2002, en skólanefnd Tónlistarskólans fól skólastjóra að ganga frá tímabundnum samningi.
Nýr kjarasamningur tónlistarkennara kveður á um 88% stöðu í stjórnun til viðbótar við skólastjóra Tónlistar-skólans. Staða aðstoðarskólastjóra verður síðan formlega auglýst í sumar.