Bæjarráð hefur samþykkt tillögu yfirkjörstjórnar um nýjan kjörstað vegna bæjarstjórnarkosninganna sem fram fara þann 25. maí n.k.
Kosið verður í Brekkubæjarskóla í stað Íþróttahússins við Vesturgötu þar sem kosning hefur farið fram unanfarnar kosningar. Ástæða breytinga er að betra aðgengi er við Brekkubæjarskóla, minna rask við daglegan rekstur viðkomandi stofnunar við undirbúning og á kjördegi og síðast en ekki síst mun minni kostnaður við uppsetningu kjördeilda í Brekkubæjarskóla heldur en í íþróttahúsinu.