Jónsmessuhátíð okkar Skagamanna hefst á morgun föstud. 25. júní. Dagskráin hefst með miðnæturgöngu á Akrafjall kl. 22:00. Þátttakendum er bent á að koma vel útbúnir, sérstaklega hvað skófatnað varðar. Á laugardag, 26. júní, hefst dagskrá kl. 17:00 á Safnasvæðinu að Görðum með fjölskylduratleik um Garðalund og fyrirtækjaratleik um Akranes. Skorað er á fyrirtæki bæjarins að taka þátt í skemmtilegum ratleik. Þar geta allir verið með. Fimm manna lið keppa um það hverjir eru fyrstir til að skipuleggja og að finna fyrir fram lagðar stöðvar. Skoðið nánari dagskrá hér.