Undirritaður var í dag samningur við VISA Ísland um boðgreiðslur. Bæjarbúum mun standa til boða að greiða ýmsar reglubundnar greiðslur til Akraneskaupstaðar með öruggum og auðveldum hætti með reglulegum færslum af VISA-greiðslukorti sínu.
Þær greiðslur sem hægt verður að inna af hendi með boðgreiðslum verða m.a. leikskólagjöld, heimilisþjónusta, hafnargjöld, vinnuskólareikningar, skóladagvist, tónlistarskólagjöld og fleiri þjónustugjöld sem Akraneskaupstaður innheimtir. Á næstu vikum mun ofangreint þjónusta verða kynnt nánar.